Sunday, November 19, 2017

Tómat- karrý kjúklingur

min_IMG_3934
Ég var svolítið tvístígandi að setja þessa uppskrift hingað inn. Ég get allavega seint kallað þetta mína uppskrift og ég veit svei mér þá ekki hvaða hugmyndin kemur. Ég fékk þennan rétt í fyrsta skipti í matarboði fyrir mörgum, mörgum árum og hann er svo góður að maður gleymir honum ekki. Það eiga því trúlega margir uppskriftina að þessum ótrúlega einfalda en hrikalega góða rétti. En ef ekki, þá er hún hér, á silfurfati með myndum, fyrir ykkur því ég veit fátt skemmtilegra en að gleðja ykkur með góðum uppskriftum! Það er nógu góð ástæða fyrir birtingu uppskriftarinnar að mínu mati. Svo finnst mér alveg ótrúlegt en gríðarlega skemmtilegt að segja frá því að þessi uppskrift er númer 100 á síðunni! Tíminn sannarlega flýgur þegar það er gaman 🙂 Nú, en að matnum, þeir sem eru sjóaðir í framandi matreiðslu, steytingu krydda, hafa skömm á tilbúnum sósum og vilja alltaf útbúa mat frá grunni ættu kannski að hætta að lesa núna. Uppskriftin er afar einföld, sérstaklega fljótleg en útkoman er eins og maður hafi staðið í eldhúsinu tímunum saman. Ungir jafnt sem aldnir sleikja sósuna af fingrunum svo góð er hún. Prófið þessa !
min_IMG_3919
Tómat karrý kjúklingabitar (fyrir 5):
  • 1 flaska Heinz chillisósa
  • 3 tsk gott karrý, t.d frá Pottagöldrum
  • 1 tsk nýmalaður svartur pipar og smá salt
  • 2 bakkar kjúklingabitar ca. 1.5 kg (t.d leggir og læri) eða einn heill kjúklingur hlutaður niður
  • 1 peli rjómi eða 2,5 dl góð kókosmjólk
  • Saxað fersk kóríander eða steinselja
min_IMG_3906Aðferð: Blandið saman chillisósu, karrý og pipar og hellið í stórt fat. Skolið kjúklingabitana, þerrið vel og skerið 2-3 djúpar rákir í hvern bita svo sósan fari vel inn í kjötið. Veltið bitunum upp úr sósunni og látið standa í 10-15 mínútur, stráið dálitlu sjávarsalti yfir bitana. Hitið ofn í 170 gráður með blæstri. Setjið kjúklingabitana í ofninn og bakið í 30 mínútur. Takið þá fatið út og hellið rjómanum eða kókosmjólkinni yfir og bakið í 30 mínútur til viðbótar. min_IMG_3915Stráið söxuðu kóríander eða steinselju yfir og berið fram með góðum hrísgrjónum og fersku salati. min_IMG_3929

No comments:

Post a Comment